Í 10. sæti sem "best leikni karakter" er Leo Getz leikinn af Joe Pesci(lék einnig annan bófann í Home Alone). Karakterinn kemur fram í Lethal Weapon seríunni. Það sem mér finnst svo mikil snilld við þennan gæja er að hann þegir bókstaflega aldrei og er alveg skemmtilega óheppinn. "okey, okey, okey" kækurinn hans er líka snilld.
Í 9.sæti sem "best leikni karakter" allra tíma er Bond, James Bond. Ég gat ekki valið milli þess hvort að það væri þegar Sean Connery lék hann eða Daniel Craig. Í raun er það líka helst bara ímyndin af Bond. Hún er nóg ein og sér.
Í 8. sæti er það Forrest Gump. Hann er svo skemmtilega einfaldur en samt svo ógeðslega mikið við öll eitthvað. Þarf ekkert að útskýra það meir.
Tuesday, October 7, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)